06.06.07 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Bjarni Óskar Þorsteinsson í Gróttu (Staðfest)

Bjarni Óskar í leik með KR sumarið 2005.

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson

Varnarmaðurinn Bjarni Óskar Þorsteinsson, fyrrum atvinnumaður og landsliðsmaður hefur gengið til liðs við Gróttu úr þriðju deildinni.
Bjarni er þessa stundina í námi í Danmörku en hann kemur hingað til lands 20.júní næstkomandi.
Bjarni yfirgaf KR um mitt síðastliðið sumar og fór til Danmerkur. Hann lék einungis tvo leiki með KR síðastliðið sumar þar sem hann átti við mikil meiðsli að stríða.
Árið 2004 lék Bjarni þrettán leiki með KR og árið 2005 sjö leiki en hann kom aftur til Vesturbæjarfélagsins í byrjun árs 2004 eftir að hafa leikið með Molde í Noregi.