06.06.07 - 13:01
Magnús Már Einarsson
Leiknir fær Hilmar Trausta frá Keflavík (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Leiknir úr fyrstu deild karla hefur fengið vinstri kantmanninn Hilmar Trausta Arnarsson og mun hann gera tveggja ára samning við félagið á morgun.
Hilmar Trausti sem hefur leikið bæði með U17 og U19 ára landsliði Íslendinga er uppalinn hjá Haukum en hann gekk til liðs við Keflvíkinga í vetur.
Hann hefur ekki fengið tækifæri í Landsbankadeildinni í sumar með Keflvíkingum og nú hefur Hilmar, sem er á 21.aldursári, ákveðið að fara í Leikni.
Hilmar gæti leikið sinn fyrsta leik með Leikni þegar að liðið mætir ÍBV í fyrstu deildinni á föstudagskvöldið.
Sjá einnig:
Hin Hliðin á Hilmari Trausta (Febrúar 2007)

Heimild: Heimasíða Leiknis