Fotbolti.net
06.06.07 - 15:13
Magnús Már Einarsson

Scott Parker til West Ham (Staðfest)

Scott Parker til West Ham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

West Ham hefur gengið frá kaupunum á Scott Parker miðjumanni Newcastle á sjö milljónir punda. Parker sem er 26 ára hefur gert fimm ára samning við West Ham en hjá félaginu hittir hann fyrir stjórann Alan Curbishley en þeir voru saman hjá Charlton á sínum tíma.
,,Hann hefur verið fyrirliði Newcastle síðustu leiktíðir og hann er nákvæmlega sú tegund af leikmanni sem ég vildi fá. Hann er mjög reynslumikill en ennþá ungur, ég er viss um að hann verður góð viðbót," sagði Curbishley.

Curbishley hefur verið á eftir miðjumanni þar sem að Nigel Reo-Coker fyrirliði West Ham er á förum, líklega til Aston Villa.

Parker var í sjö ár með Curbishley hjá Charlton áður en hann fór til Chelsea.

Hann fékk fá tækifæri hjá Chelsea og fór síðan til Newcastle á 6,5 milljónir punda árið 2005 þar sem að hann var gerður að fyrirliða síðastliðið sumar.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.