06.06.08 - 16:22
Gunnar Gunnarsson
José Martín Cáceres til Barcelona (Staðfest)

José Martín Cáceres nýr liðsmaður Barcelona

Mynd: Getty Images

José Martín Cáceres nýr liðsmaður Barcelona

Mynd: Getty Images
Hinn 21 árs gamli varnarmaður José Martín Cáceres hefur skrifað undir fjögra ára samning við Barcelona. Leikmaðurinn fór í læknisskoðun í morgun og stóðst hana með glæsibrag.
,,Ég er mjög ánægður. Ég spilaði fyrir Recreativo Huelva á síðustu leiktíð og núna mun ég spila fyrir Barcelona. Þetta lið hefur á að skipa mörgum hágæða leikmönnum og er eitt stærsta félag Evrópu." sagði þessi efnilega varnarmaður við komuna til Barcelona.
Ljóst er að Börsungar eru farnir að safna liði fyrir næsta tímabil því Martín Cáceres er þriðji leikmaðurinn sem gengið hefur í raðir félagsins á skömmum tíma.
Gerard Piqué kom frá Manchester United og Seydou Keita gekk einnig í herbúðir Katalóníuliðsins frá Sevilla fyrir 14 milljónir evra.

Heimild: Heimasíða Barcelona