Leiknir F 1-0 Kári
1-0 Björgvin Stefán Pétursson ('6)
(Rautt Spjald: Kári (leikmann vantar) '85
1-0 Björgvin Stefán Pétursson ('6)
(Rautt Spjald: Kári (leikmann vantar) '85
Leiknir F og Kári áttust við í dag í síðasta leik fimmtu umferðarinnar í 2. deild karla.
Leiknir vann leikinn með einu marki gegn engu en það var Björgvin Stefán Pétursson sem gerði eina mark leiksins strax á sjöttu mínútu. Gestirnir frá Akranesi fengu rautt spjald þegar fimm mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma.
Leiknir hefur verið að rétta úr kútnum en liðið tapaði þremur fyrstu leikjum sínum í deildinni. Nú eru komnir tveir sigurleikir í röð og liðið því með sex stig eftir fimm umferðir.
Kára menn sitja hins vegar á botninum með einungis eitt stig eftir fimm leiki.
Athugasemdir