Ráðamenn Tottenham Hotspurs hafa tekið þá ákvörðun að reka Ange Postecoglou, en hann hefur verið stjóri liðsins í tvö ár.
Matt Law, blaðamaður hjá Telegraph, skrifar í dag að búist sé við tilkynningu frá Tottenham fljótlega.
Uppfært 16:10 - Tottenham hefur staðfest tíðindin. Honum er þakkað fyrir sín störf. Ástæðan fyrir því er slakur árangur í úrvalsdeildinni.
Ákvörðunin er tekin rúmum tveimur vikum eftir að Totteham vann sinn fyrsta titil í sautján ár, en liðið sigraði Manchester United í úrslitaleik Evrópudeildarinnar. Með því vannst titil og á sama tíma tryggði liðið sér sæti í Meistaradeildinni á næsta tímabili.

Tímabilið hjá Tottenham var samt á heildina litið ekki gott, liðið gat lítið í ensku úrvalsdeildinni og var langt undir væntinum. Vissulega var mikið um meiðsli en Postecoglou tók þá ákvörðun þegar leið á tímabilið að einbeita sér að keppnum þar sem hann gat unnið titil og sat úrvalsdeildin svolítið á hakanum. Niðurstaðan varð sú að Tottenham endaði í 17. sæti deildarinnar, þó þrettán stigum frá falli, en setti met með því að tapa 22 leikjum og er varð með því það lið í sögunni sem hefur tapað flestum leikjum án þess að falla.
Postecoglou hafði sagt snemma á tímabilinu að hann ynni alltaf titil á sínu öðru tímabili sem stjóri hjá félaginu og stóð við það, vann Evrópudeildina. Á síðustu dögum hafa borist þær fréttir að Tottenham þurfi að greiða honum fjórar milljónir punda fyrir að láta hann fara á þessum tímapunkti, og niðurstaðan að stjórinn hefur verið látinn fara. Hann átti tvö ár eftir af samningnum sem hann skrifaði undir sumarið 2023.
Thomas Frank, stjóri Brentford, er sagður líklegastur til að taka við. Marco Silva, Oliver Glasner, Xavi og Michael Carrick eru næstu menn á lista hjá veðbönkum sem stendur.
One of the coldest quotes in football history ???? pic.twitter.com/LRnvQgk5wK
— Football on TNT Sports (@footballontnt) June 6, 2025
Athugasemdir