Brynjar Björn ráðinn meðþjálfari Víkings (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur tilkynnti í dag að félagið væri búið að ráða Brynjar Björn Gunnarsson í þjálfarateymi meistaraflokks karla. Sagt er að það sé í aðdraganda Sambandsdeildar karla en dregið verður í 1. umferð forkeppninnar eftir rúma viku og sú umferð spiluð í júlí. Brynjar Björn er tilkynntur sem meðþjálfari Sölva Geirs í Evrópukeppninni.
Brynjar Björn var síðast aðstoðarþjálfari Fylkis seinni hluta síðasta tímabils eftir að hafa verið látinn fara frá Grindavík snemma á tímabilinu. Hann fundaði samkvæmt heimildum Fótbolta.net með Leikni á dögunum en Leiknir ákvað að ráða Ágúst Gylfason í þjálfarastarið.

Tilkynning Víkings
Brynjar kemur til með að sinna hlutverki meðþjálfara liðsins í Evrópukeppni ásamt Sölva Geir Ottesen.
Brynjar Björn, sem hefur lokið UEFA Pro þjálfaragráðu, á að baki öflugan þjálfaraferil hjá Stjörnunni, HK, Örgryte, Grindavík og Fylki.
Þá á Brynjar Björn að baki afar farsælan feril erlendis með Stoke, Nottingham Forest, Watford og Reading á Englandi, Vålerenga í Noregi og Örgryte í Svíþjóð ásamt því að hafa leikið 74 A-landsleiki fyrir Íslands hönd.
Knattspyrnudeild Víkings lýsir yfir mikilli ánægju með ráðningu Brynjars og býður hann velkomin til starfa. Brynjar hefur störf fyrir félagið eftir landsleikjahlé.