Fotbolti.net
06.06.25 - 16:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Gasperini tekinn við Roma (Staðfest)

Gian Piero Gasperini.

Gian Piero Gasperini.

Canon

Mynd: EPA

Gian Piero Gasperini er nýr stjóri Roma á Ítalíu en hann skrifar undir samning við félagið sem gildir til ársins 2028.

Claudio Ranieri kom að ráðningunni en hann stýrði Roma á síðasta tímabili.
„Eigendurnir og Claudio Ranieri eru sannfærðir um að Gasperini sé rétti maðurinn fyrir starfið," segir í tilkynningu Roma.

Gasperini tekur við Roma eftir að hafa gert magnaða hluti með Atalanta. Gasperini tók við Atalanta árið 2016 en árin á undan hafði liðið verið að flakka á milli sæta í neðri hlutanum á Ítalíu.

Hann kom Atalanta í Evrópudeildina á fyrsta tímabili sínu þar og gerði það að einu besta liði Ítalíu á tíma sínum hjá félaginu. Þremur árum síðar kom hann liðinu í Meistaradeild Evrópu í fyrsta sinn. Á síðasta ári fékk hann loks þá viðurkenningu sem hann átti skilið er Atalanta varð Evrópudeildarmeistari með því að vinna 3-0 sigur á Bayer Leverkusen, sem var þá heitasta lið Evrópu.

Núna tekur hann við Roma og verður gaman að sjá hvað hann gerir þar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.