Fotbolti.net
06.06.25 - 18:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Juric tekinn við Atalanta (Staðfest)

Juric tekinn við Atalanta (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Ivan Juric hefur verið ráðinn þjálfari Atalanta og skrifar undir tveggja ára samning.
Hann tekur við af Gian Piero Gasperini sem tók við Roma í dag. Hann náði frábærum árangri með Atalanta eftiir að hafa tekið við stjórnartaumunum árið 2016. Liðið hafði verið í neðri hluta deildarinnar en hann vann Evrópudeildina með liðinu á síðustu leiktíð.

Ráðningin á Juric vekur mikla athygli þar sem hann hefur verið í brasi undanfarið.

Hann tók við Roma í september eftir að Daniele De Rossi var rekinn, en hann entist ekki mikið lengur því aðeins tveimur mánuðum síðar var hann látinn fara eftir röð slakra úrslita.

Juric sneri aftur í þjálfun í lok desember en þá tók hann við Southampton í ensku úrvalsdeildina. Honum var úthlutað það verkefni að halda liðinu uppi í deild þeirra bestu, en hann var langt frá því að ná því markmiði.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.