Fotbolti.net
06.06.25 - 17:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Newcastle selur Kelly til Juve (Staðfest) - Wilson í viðræðum

Kelly í baráttunni við Matteo Retegui í vetur.

Kelly í baráttunni við Matteo Retegui í vetur.

Canon

Mynd: EPA

Newcastle greindi í dag frá breytingum á leikmannahópi sínum eftir tímabilið 2024/25. Jamal Lewis er eini leikmaður aðalliðsins sem yfirgefur félagið á frjálsri sölu.

Lloyd Kelly hefur verið keyptur til Juventus en hann fór á láni til ítalska félagsins í janúar og var kaupákvæði í samningnum. Kelly er varnarmaður sem kom á frjálsri sölu til Newcastle frá Bournemouth síðasta sumar. Juve greiðir 14,5 milljónir evra fyrir Kelly en sú upphæð getur hækkað út frá árangurstengdum gjöldum.
Newcastle gaf út að félagið væri i viðræðum við Callum Wilson og John Ruddy um nýja samninga en núgildandi samningar þeirra renna út í lok mánaðar.

Wilson hefur verið orðaður við Leeds í sumar. Hann er öflugur framherji en hefur mikið verið meiddur að undanförnu og er varamaður fyrir Alexander Isak þegar Newcastle teflir fram sínu sterkasta liði.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.