Michael Olise, Arne Slot, Julian Alvarez, Rafael Leao, Yan Diomande og fleiri góði koma til sögu í slúðrinu
   lau 06. júní 2026 17:29
Brynjar Ingi Erluson
Brighton kaupir efnilegan Nígeríumann frá AIK (Staðfest)
Mynd: Brighton
Enska úrvalsdeildarfélagið Brighton hefur fest kaup á nígeríska kantmanninum Zadok Yohanna frá sænska félaginu AIK. Hann skrifaði undir fimm ára samning við Brighton í dag.

Yohanna er 18 ára gamall og einn mest spennandi leikmaðurinn í skandinavíska boltanum.

Hann hefur spilað frábærlega með AIK í sænsku úrvalsdeildinni og var orðaður við mörg stór félög áður en hann samþykkti að ganga í raðir Brighton. Kaupverðið nemur um 21,5 milljónum punda.

Félagið staðfesti kaupin á honum í dag og segist Fabian Hürzeler, stjóri Brighton, ánægður með að fá hann til félagsins.

„Ég hlakka til að vinna með Zadok. Eftir að hafa séð hann spila og skoðað kosti hans get ég sagt að hann er leikmaður sem getur haft áhrif á síðasta þriðjungi vallarins. Hann kemur með sköpunargáfu sem ég veit að stuðningsmenn okkar munu njóta. Hann er dýnamískur, hraður og elskar að taka leikmenn á. Hæfileikar hans og kostir verða góð viðbót við sóknarleik okkar,“ sagði Hürzeler.

Yohanna hefur spilað átján leiki með AIK á tímabilinu og komið að níu mörkum.


Slapp
banner