Elfar Árni Aðalsteinsson var í liði Völsungs og skoraði mark í 5-1 tapi þeirra gegn Vestra á Ísafirði fyrr í dag.
Fótbolti.net ræddi við Elfar eftir leikinn.
Lestu um leikinn: Vestri 5 - 1 Völsungur
5-1 tap á Ísafirði í dag, hver eru fyrstu viðbrögð eftir leik?
„Auðvitað mikil vonbrigði, mér fannst við koma flottir inn í leikinn, í fyrri hálfleik fannst mér við vera miklu betra liðið og við gáfum þeim þetta mark sem þeir skora í fyrri hálfleik, við náum svo að jafna og fengum flotta sénsa til að skora fleiri mörk en við náðum því ekki. Við komum inn í seinni hálfleikinn og fáum á okkur mark, eftir það förum við bara í eitthvað rugl og klúðruðum þessum leik sannfærandi."
Þú talar um að þið hafið verið góðir í fyrri hálfleik og leikurinn jafn, hvað gerðist í seinni hálfleik?
„Það er kannski augljóst að við erum ekki búnir að vinna leik í sumar og erum búnir að vera að tapa síðustu leikjum, þá er kannski sjálfstraustið ekki mikið til staðar og þegar þetta virðist ekki vera að detta fyrir þig þá eru menn oft fljótir að fara að vorkenna sér. Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér, við verðum bara að halda áfram og um leið og við hættum að vinna grunnvinnuna og fara í seinni boltana þá fáum við fullt af mörkum á okkur".
Völsungur hefur ekki unnið leik í fyrstu átta leikjunum, hvernig er stemmingin og sjálfstraustið hjá liðinu?
„Stemmingin er merkilega góð, það er fínn andi í hópnum. Auðvitað er ekki gaman að vera ekki búnir að vinna leik, en ég hef fulla trú á því að ef við náum að tengja þessar góðu mínútur lengur að þá er stutt í fyrsta sigurleikinn".
Borja Martin Iglesias hefur nú þjálfað fjóra leiki eftir að hann tók við liðinu, hvernig er hann að koma inn í þetta?
„Hann er að aðlagast fínt, hann er að aðlagast liðinu og liðið er að aðlagast honum. Auðvitað er hann með einhverjar hugmyndir sem er ekki endilega gott að koma inn einn tveir og bingó og ætla að gera það sínu eigin liði strax, en þetta er í rétta átt og vonandi fer þetta að detta inn fljótlega".
Viðtalið í held sinni má sjá í spilaranum fyrir ofan.






















