Federico Chiesa er ósáttur með spiltímann sinn hjá Liverpool og íhugar að yfirgefa félagið.
Chiesa gekk til liðs við Liverpool frá Juventus árið 2024 en tækifærin hafa verið af skornum skammti. Hann kom við sögu í 36 leikjum á síðasta tímabili en var aðeins fimm sinnum í byrjunarliðinu.
Chiesa gekk til liðs við Liverpool frá Juventus árið 2024 en tækifærin hafa verið af skornum skammti. Hann kom við sögu í 36 leikjum á síðasta tímabili en var aðeins fimm sinnum í byrjunarliðinu.
„Ég vil spila og ef ég finn ekki stöðugleika þarf ég að finna hann annars staðar. Þessu tímabili er nýlokið og ég fékk nánast engar mínútur. Ég fer í æfingaferð til Bandaríkjanna og mun ræða við félagið og Iraola og svo sjáum við til," sagði Chiesa.
Chiesa hefur verið orðaður við endurkomu til Ítalíu. Það kom ekki til grein að selja hann í janúar vegna meiðsla Alexander Isak og þá var Mohamed Salah í Afríkukeppninni.


