David Sullivan, meðeigandi West Ham, hefur sagt af sér sem meðformaður félagsins í kjölfar rannsóknar BBC Panorama og Times á hegðun hans.
BBC mun greina frá ásökunum eftir helgi en Sullivan segir að áralangar ásakanir varðandi einkalíf sitt séu algjörlega rangar.
„Það er ljóst að engar af ásökununum tengjast West Ham United eða neinum rekstri þess," segir í yfirlýsingu frá West Ham.
Sullivan hefur verið stærsti einstaki hluthafi félagsins frá andláti viðskiptafélaga síns, Davids Gold, í janúar 2023, sem skildi hann eftir með 38,8% hlut.
Hann hyggst kæra BBC „ásamt öllum öðrum fjölmiðlum sem endurtaka meiðyrðisfullar ásakanir“.
West Ham féll úr úrvalsdeildinni á nýliðinni leiktíð.

