06.07.07 - 14:00
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Sven-Goran Eriksson ráðinn stjóri Man City (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Fyrrum enski landsliðsþjálfarinn Sven-Goran Eriksson hefur verið ráðinn nýr knattspyrnustjóri Manchester City.
Þessi 59 ára gamli Svíi skrifaði undir þriggja ára samning sem er talinn vera virði níu milljón punda og mun hann að öllum líkindum fá 50 milljónir punda til þess að eyða á leikmannamarkaðnum.
Talið er að Tord Grip verði enn einu sinni aðstoðarmaður Eriksson en hann var það einnig öll sex árin með enska landsliðinu.
,,Ég er mjög ánægður og heiðraður að vera stjóri City. Þetta er spennandi áskorun. Ég er nú þegar byrjaður að undirbúa nýtt tímabil. Ég vil gera lið sem frábærir stuðningsmenn okkar geta verið stoltir af,” sagði Eriksson á heimasíðu félagsins.
Eriksson, sem hefur ekki þjálfað síðan hann hætti með enska landsliðið síðasta sumar, hitti leikmenn City á æfingu í gær.

Heimild: BBC