Fotbolti.net
06.07.07 - 18:37
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Bolo Zenden til Marseille (Staðfest)

Bolo Zenden til Marseille (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Hollenski miðjumaðurinn Boudewijn Zenden hefur gengið til liðs við franska félagið Marseille á frjálsri sölu eftir að samningur hans við Liverpool var ekki endurnýjaður í vor.
Zenden, sem hefur spilað 54 landsleiki fyrir Holland og þann síðasta í September 2004, skrifaði undir tveggja ára samning við Marseille.

Áður en Zenden fór á Anfield, þar sem hann spilaði meðal annars í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í vor, spilaði hann með PSV Eindhoven, Barcelona, Chelsea og Middlesbrough.

Hann spilaði aðeins 47 leiki fyrir Liverpool á tveimur árum vegna meiðsla og skoraði þar tvö mörk.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.