Fotbolti.net
06.08.07 - 16:55
Hafliði Breiðfjörð

Jose Enrique til Newcastle (Staðfest)

Enrique í baráttu við Lionel Messi framherja Barcelona.

Enrique í baráttu við Lionel Messi framherja Barcelona.

Canon

Mynd: Getty Images

Newcastle United hafa keypt spænska U21 árs landsliðsmanninn Jose Enrique frá Villarreal á Spáni á 6,5 milljónir punda. Enrique sem er 21 árs vinstri bakvörður gerir fimm ára samning við Newcastle. Hann horfði á sigurleik Newcastle gegn Sampdoria í gær.
Sam Allardyce knattspyrnustjóri Newcastle er einnig talinn hafa áhuga á að kaupa serbneska varnarmanninn Ivica Dragutinovic frá Sevilla en hann er 31 árs gamall.

Dragutinovic á að baki 31 landsleiki fyrir Serbíu & Svartfjallaland. Hann er með þriggja ára samning við Sevilla sem rennur út árið 2008.

Serbinn var í serbnesku vörninni sem fékk aðeins á sig eitt mark í undankeppni Heimsmeistaramótsins 2006.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.