Fotbolti.net
06.08.26 - 15:44
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Tveir kveðja Keflavík (Staðfest)

Alghoul.

Alghoul.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Keflavík hefur komist að samkomulagi við Halid Alghoul um riftun á samningi hans við félagið.

Í tilkynningu Keflavíkur er honum þakkað fyrir framlagið og óskað góðs gengis á nýjum vettvangi. Hann kom inn í níu leikjum í Bestu deildinni í sumar og lagði upp eitt mark.

Halid er yngri bróðir Muhamed Alghoul sem hefur verið í fréttum fyrir að hafa nefbrotnað eftir ágreining á æfingu Keflavíkur í síðustu viku. Honum og Alpha Conteh lenti saman og Conteh sló Muhamed og nefbraut hann. Hvorki Muhamed né Halid voru í leikmannahópi Keflavíkur gegn KA í gær.
Halli: Það verða klárlega afleiðingar
TENGT EFNI

Halli: Það verða klárlega afleiðingar

Þá segir Keflavík frá því að Mirsad Basic sé farinn frá félaginu. Hann er sænskur markvörður sem kom til félagsins í vor eftir að Sindri Kristinn Ólafsson hélt til Svíþjóðar.

Basic handarbrotnaði í sumar og hefur Helgi Bergmann Hermannsson verið á bekknum síðan.
Basic.

Basic.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.