Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 06. október 2022 19:03
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Portúgal verður andstæðingur Íslands í umspilinu eftir mikið drama
Icelandair
Portúgal verður andstæðingur Íslands í umspilinu.
Portúgal verður andstæðingur Íslands í umspilinu.
Mynd: Getty Images
Portúgal 2 - 1 Belgía
1-0 Diana Silva ('29)
1-1 Tessa Wullaert ('40)
2-1 Carole Costa ('89)

Það er núna ljóst að Ísland mun mæta Portúgal í umspilinu fyrir HM á þriðjudaginn.

Portúgal og Belgía mættust í kvöld. Sigurliðið úr þessum leik yrði andstæðingur Íslands í hreinum úrslitaleik á þriðjudaginn.

Belgar voru sigurstranglegri fyrir leikinn en Portúgal - sem er á uppleið í kvennaboltanum - spilaði gríðarlega vel í kvöld og vann sanngjarnan sigur. Hann var svo sannarlega dramatískur, en sanngjarn var hann.

Það var mikil dramatík undir lokin. Belgar skoruðu og komist í 2-1 en það var dæmt ógilt með VAR. Svo fengu Portúgalar vítaspyrnu en VAR sneri þeim dómi við í aukaspyrnu. Belgar fengu rautt og heimakonur nýttu sér liðsmuninn með því að skora sigurmarkið.

Portúgalar verða því andstæðingar Íslands á þriðjudaginn í hreinum úrslitaleik um það að komast inn á HM. Þetta verður mjög spennandi en Ísland fer inn í leikinn sem sigurstranglegra liðið - allavega miðað við heimslista FIFA. Á þeim lista er Ísland í 14. sæti og Portúgal í 27. sæti.


Athugasemdir
banner
banner