Fotbolti.net
06.10.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

47 sveitar- og íþróttafélög sóttu um sparkvelli

47 sveitar- og íþróttafélög sóttu um sparkvelli
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KSÍ kynnti í september FIFA Arena verkefni í samstarfi við FIFA og hefur umsóknum frá íslenskum sveitar- og íþróttafélögum rignt inn.
FIFA og KSÍ bjóða nýja sparkvelli
TENGT EFNI

FIFA og KSÍ bjóða nýja sparkvelli

Nú hefur verið lokað fyrir umsóknir og mun sérstök nefnd skipuð af KSÍ fara yfir umsóknirnar og velja tvær sem standa upp úr. Verkefni nefndarinnar er að skila rökstuddum tillögum um staðsetningu tveggja FIFA Arena valla á Íslandi til stjórnar KSÍ.

Alls bárust 47 umsóknir og mun nefndin meta þær út frá fyrirfram skilgreindum viðmiðum frá FIFA. Nefndin mun styðjast við sérstakt einkunnakerfi til að meta umsóknirnar og flokka.

Eyrún Linnet og Inga Rut Hjaltadóttir úr mannvirkjanefnd KSÍ eru í nefndinni ásamt Klöru Bjartmarz, Pálma Haraldssyni, Þorbergi Karlssyni og Fannari H. Rúnarssyni.

Gert er ráð fyrir að nefndin skili stjórn KSÍ tillögum sínum ásamt greinargerð í lok október. Stjórn KSÍ mun í kjölfarið taka endanlega ákvörðun um val á verkefnum.
47 sveitar- og íþróttafélög sóttu um sparkvelli
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.