20.08.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
FIFA og KSÍ bjóða nýja sparkvelli
Sveitarfélög og íþróttafélög geta sótt um

Mynd: EPA

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: EPA
KSÍ hefur tilkynnt að opið sé fyrir umsóknir í FIFA Arena verkefnið sem snýr að því að byggja sparkvelli víðs vegar um heim. Markmiðið er að skapa öruggar, aðgengilegar og góðar aðstæður fyrir börn og ungmenni, sérstaklega í samfélögum þar sem aðstöðu til fótboltaiðkunar er ábótavant.
Mikilvægt er að vellirnir séu öruggir fyrir börn og ungmenni til að stunda fótbolta eða annan leik. Vellirnir geta verið vettvangur sem eykur aðgengi að íþróttinni og getur stuðlað að aukinni þátttöku barna og ungmenna.
Verkefnið var formlega tilkynnt í maí 2025 og byggir á loforði um að bjóða börnum fleiri tækifæri til að spila og læra í gegnum fótbolta - með áherslu á menntun, jöfnuð og samfélagsleg gildi. FIFA Arena svæðin eiga að vera hluti af stærra samfélags- og menntaverkefni og er ætlað að hvetja til heilbrigðs lífsstíls, félagslegrar samheldni og tækifæra fyrir unglinga.
FIFA vinnur verkefnið með fótboltasamböndum víðsvegar um heim með þann tilgang að setja upp velli á stöðum þar sem aðstöðu skortir.
Vellirnir eru smærri en hefðbundnir knattspyrnuvellir, 20m x 40m og henta vel fyrir 5 eða 7 manna bolta eða minni leiki og frjálsan leik. Vellirnir þola mikla notkun, bæði skipulagða og óskipulagða.
Gervigras af FIFA-vottaðri gerð er á völlunum. Það er sérstaklega hannað fyrir mikla notkun og er án innfylliefna, sem tryggir lítið viðhald og umfram allt notkun yfir allt árið.
Vellirnir eru girtir og umhverfis þá er fjögurra metra há girðing. Innbyggð mörk eru á hvorum enda (3m x 1m).
FIFA sér um uppsetningu vallanna og annars sem þeim tilheyra - að undanskildu undirlagi, aðgengi og umhverfisfrágangi.
FIFA og KSÍ standa straum af flutningi sparkvallanna til landsins og á viðkomandi uppsetningarstað, öllum efnum sem þarf svo sem gervigrasi, grindverki, netum og mörkum og uppsetningunni sjálfri.
Hlutverk sveitarfélags/íþróttafélags er að finna vellinum staðsetningu með undirlagi sem mætir stöðlum FIFA. Staðsetning vallar skal vera í grennd við skóla og/eða svæði sem muni nýtast til fótboltaiðkunar.
Völlurinn mun vera í eigu sveitarfélags/íþróttafélags og mun eigandinn bera ábyrgð á viðhaldi og umhirðu vallar sem og daglegum rekstri.
Nánari upplýsingar má finna á vef KSÍ

Heimild: KSÍ