Fotbolti.net
06.10.26 - 13:30
Kári Snorrason

Maresca fundar með hópnum á fimmtudag

Enzo Maresca.

Enzo Maresca.

Canon

Mynd: EPA

Enzo Maresca mun funda með leikmönnum Manchester City á fimmtudag þegar hópurinn kemur saman á ný í fyrsta sinn frá því að tilkynnt um að félagið hafi brotið fjármálareglur ensku úrvalsdeildarinnar.
Stór hluti leikmannahópsins hefur verið í landsliðsverkefnum undanfarnar tvær vikur. Maresca hefur ekki opinberlega tjáð sig um málið með beinum hætti.

Skömmu eftir að tilkynnt var um brotin birti hann þó nokkrar myndir á Instagram og vitnaði í gríska heimspekinginn Sókrates. „Það eina sem ég veit er að ég veit ekki neitt,“ stóð við eina myndina.

Næsti leikur Manchester City er gegn Liverpool á Anfield á sunnudag og verður það fyrsti leikur liðsins frá því niðurstaðan í málinu var tilkynnt.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.