Fotbolti.net
06.10.26 - 19:41
Brynjar Ingi Erluson

Meistararnir óvænt úr leik

Meistararnir óvænt úr leik
Canon

Mynd: EPA

Sænsku deildar- og bikarmeistararnir Mjällby eru óvænt úr leik í bikarnum eftir 1-0 tap fyrir C-deildarliði Trollhättan í kvöld.
Mjällby vann eftirminnilega tvennu á síðasta tímabili og fagnaði þar með fyrstu stóru titlunum í sögu félagsins.

Í kvöld féll liðið hins vegar óvænt úr leik í bikarnum eftir 1-0 tap fyrir Trollhättan. Melwin Berg skoraði eina markið á 11. mínútu og tryggði Trollhättan sæti í riðlakeppninni sem fer fram á næsta ári.

Mjällby hefur ekki unnið leik síðan Andreas Brännström tók við þjálfun liðsins af Karl Marius Aksum í síðasta mánuði og situr í 12. sæti deildarinnar.

Mikið hefur hallað undan fæti frá því að liðið varð meistari en það missti nokkra mikilvæga leikmenn í sumar og þá hætti Anders Torstensson þjálfun liðsins eftir að hafa unnið deildina á síðasta ári.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.