Fotbolti.net
06.10.26 - 10:42
Elvar Geir Magnússon

Sádar draga háleitar hugmyndir að HM velli í land

Sádar draga háleitar hugmyndir að HM velli í land
Canon

Mynd: Sádi-Arabía

Sádi-Arabía verðust gestgjafi HM 2034 og fyrir tveimur árum voru kynntar ótrúlegar áætlanir um byggingu nýrra framúrstefnulegra leikvanga. Hinsvegar hefur verið hætt við byggingu á einum af áhugaverðustu og stærstu völlunum sem kynntir voru.

NEOM-leikvangurinn átti að vera hluti af Línunni, fyrirhugaðri snjallborg í Sádi-Arabíu. Hann átti að vera 350 metrum yfir jörðu og búinn allri nýjustu tækni en þessar áætlanir virðast komnar á hilluna.
Ótrúleg framtíðarsýn Sáda fyrir leikvangana á HM 2034
TENGT EFNI

Ótrúleg framtíðarsýn Sáda fyrir leikvangana á HM 2034

Fyrirhugaðar framkvæmdir við NEOM-leikvanginn hafa verið settir „í biðstöðu“ en aðrir áætlaðir vellir eru á ýmsum stigum þróunar og áætlað er að þeir verði klárir eigi síðar en árið 2033.

Mótið verður það fyrsta sem inniheldur 48 lið en verður bara í einu landi.
Hætt hefur verið við NEOM-völlinn.

Hætt hefur verið við NEOM-völlinn.

Canon

Mynd: Sádi-Arabía

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.