06.11.07 - 13:32
Hörður Snævar Jónsson
Ágúst Gylfason í Fjölni (Staðfest)

Ágúst Gylfason í leik með KR gegn Breiðablik í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ágúst Gylfason hefur ákveðið að ganga í raðir Fjölnis en þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net nú í dag.
Ágúst skrifar undir eins ár samning við Fjölni en liðið mun leika í Landsbankadeildinni á næstu leiktíð í fyrsta skipti í sögu félagsins.
Þessi 36 ára gamli leikmaður getur leikið bæði á miðjunni og í vörninni en hann hefur leikið með KR undanfarin fjögur ár og í sumar kom hann við sögu í níu leikjum liðsins í Landsbankadeildinni.
Ágúst hefur einnig leikið með Val og Fram hér á landi og þá lék hann með Brann í Noregi um nokkurra ára skeið.
Hann hafði tilboð frá Reyni Sandgerði og Leikni en hafnaði þeim og hefur ákveðið að ganga í raðir Fjölnis.