Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 06. nóvember 2019 19:31
Aksentije Milisic
Einkunnir Vitoria og Arsenal: Holding verstur
Marcus Edwards.
Marcus Edwards.
Mynd: Getty Images
Vitoria og Arsenal áttust við fyrr í dag í fjórðu umferð Evrópudeildarinnar. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli þar sem heimamenn jöfnuðu leikinn í uppbótartíma með bakfallsspyrnu.

Sky Sports tók saman einkunnir liðanna en bæði lið fengu svipaða dóma.

Hjá Arsenal fékk Rob Holding lægstu einkunn sem var 5. Þrír fengu 8 en það voru þeir Emiliano Martinez markvörður, Shkodran Mustafi og Kieran Tierney.

Hjá Vitoria var Marcus Edwards valinn maður leiksins en hann var áður í unglingaliði Tottenham. Pochettino stjóri Tottenham líkti honum á m.a. við Lionel Messi árið 2016.

Einkunnir Sky Sports:

Vitoria: Douglas Jesus (6), Garcia (6), Frederico Venancio (6), Tapsoba (6), Rafa Soares (6), Pepe (7), Agu (6), Evangelista (6), Edwards (8), Duarte (7), Davidson (7).

Varamenn: Poha (5), Rochinha (6).

Arsenal: Martinez (7), Sokratis (6), Holding (5), Mustafi (7), Maitland-Niles (6), Ceballos (6), Willock (6), Tierney (7), N Pepe (6), Martinelli (6), Saka (6).

Varamenn: Guendouzi (6), Lacazette (6), Torreira (5).


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner