Fotbolti.net
06.12.06 - 15:39
Hafliði Breiðfjörð

Pétur Örn Svansson í Víking (Staðfest)

Pétur Örn Svansson.

Pétur Örn Svansson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Víkingar fengu í dag liðsstyrk þegar kantmaðurinn Pétur Örn Svansson gekk til liðs við félagið frá Leikni í Breiðholti en þetta kemur fram á vef stuðningsmanna félagsins, Víkingur.net. Eins og við höfðum áður sagt frá hefur Pétur verið við æfingar hjá félaginu.
Pétur gerir tveggja ára samning við Víkinga en hann var samningslaus hjá Leikni. Hann er 22 ára lék vel í fyrstu deildinni í sumar og skoraði sex mörk í átján leikjum en öll mörkin skoraði hann í fyrri hluta mótsins. Í fyrra skoraði hann tvö mörk í sautján leikjum þegar að Leiknir sigraði aðra deildina.

Hann er þriðji leikmaðurinn sem gengur til liðs við Víkinga í sumar, áður höfðu komið þeir Gunnar Kristjánsson frá KR og Björn Viðar Ásbjörnsson frá Fylki auk þess sem Egill Atlason mun leika með liðinu á ný. Víkingar hafa misst Viktor Bjarka Arnarson til Lilleström og Daníel Hjaltason í Val.

Heimild: Víkingur.net

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.