Fotbolti.net
07.01.06 - 11:16
Hafliði Breiðfjörð

Ali Al-Habsi til Bolton (Staðfest)

Ali Al-Habsi til Bolton (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Ali Al-Habsi landsliðsmarkvörður Oman og markvörður Lyn í Noregi er genginn í raðir Bolton Wanderers. Al-Habsi er 23 ára gamall. Hann var valinn næst besti markvörður norsku deildarinnar á síðustu leiktíð, var á eftir Árna Gaut Arasyni markverði íslenska landsliðsins.
Hann gerði þriggja og hálfs árs samning við Bolton og léttir á áhyggjum Sam Allardyce stjóra Bolton en framtíð finnska markvarðarins Jussi Jaaskelainen hjá Bolton er í óvissu.

Allardyce sagði að Ali sé magnaður markvörður og að hann muni skapa þarfa samkeppni í markvarðarstöðuna hjá Bolton. Al-Habsi sagðist ánægður með að vonir Sam Allardyce um framtíð félagsins og sagði að félagið væri á uppleið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.