Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   þri 07. janúar 2020 20:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Young, Chong og Lingard á leið til Ítalíu?
Mynd: Getty Images
Samkvæmt erlendum miðlum eru þrír leikmenn Manchester United mögulega á förum í ítölsku Seríu A.

Telegraph greinir frá því að Ashley Young fái tækifæri til að yfirgefa United í mánuðinum og félög á Ítalíu eru sögð hafa áhuga.

DailyMail greinir frá því að Tahith Chong ætli sér ekki að semja við United og muni semja við Juventus og ganga í raðir ítalska félagsins á komandi sumri á frjálsri sölu. Chong er sagður fá tilboð upp á 35 þúsund pund í vikulaun hjá Juve og 2 milljónir punda fyrir að skrifa undir.

Þá segir Sport Witness frá því að AC Milan hafi verið boðið að kaupa Jesse Lingard og að miðjumaðurinn sé á förum frá United.
Athugasemdir
banner
banner
banner