10.11.26 - 19:27
Brynjar Ingi Erluson
Chelsea reiðubúið að hlusta á tilboð í Gusto

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea er tilbúið að hlusta á tilboð í franska bakvörðinn Malo Gusto í janúarglugganum.
Gusto, sem er 23 ára, vill komast frá Chelsea í leit að meiri spilatíma og eru Liverpool, Manchester City og Tottenham öll að íhuga að reyna að fá hann til sín í janúar.
Samkvæmt TeamTalk er Chelsea opið fyrir því að selja Frakkann, en hann hefur aðeins verið í byrjunarliðinu í þremur leikjum í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu og ekki alveg verið upp á sitt besta.
Chelsea verðmetur Gusto á um 70 milljónir punda, en gæti verið tilbúið að sætta sig við 57 milljónir punda fyrir hann.
Fjölmörg önnur félög í Evrópu hafa einnig áhuga á Gusto, sem gekk til liðs við Chelsea frá Lyon árið 2023.