10.11.26 - 19:28
Brynjar Ingi Erluson
Cecilía og Karólína byrja gegn Man City - Glódís á bekknum gegn PSG

Cecilía og Karólína byrja gegn Man City

Mynd: Inter

Cecilía og Karólína byrja gegn Man City

Mynd: Inter

Byrjunarliðin fyrir leiki kvöldsins í Meistaradeild kvenna liggja fyrir, en þrjár íslenskar landsliðskonur eru í eldlínunni. Leikirnir hefjast klukkan 20:00.
Cecilía Rán Rúnarsdóttir er á milli stanganna hjá Inter sem tekur á móti Manchester City í Mílanó.
Hún hefur verið að gera frábæra hluti með Inter á tímabilinu og haldið hreinu í öllum deildarleikjum liðsins til þessa.
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir er einnig í byrjunarliði Inter og leikur á miðjunni, en liðið er með fjögur stig eftir þrjá leiki í Meistaradeildinni.
Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði Bayern München og íslenska landsliðsins, byrjar á bekknum hjá Bæjurum gegn PSG.
Það eru jákvæð tíðindi fyrir íslenska landsliðið fyrir umspilsleikina gegn Portúgal, en Glódís hefur misst af síðustu tveimur leikjum Bayern vegna hnémeiðsla.
Bayern er með fimm stig eftir þrjá leiki í Meistaradeildinni.

Unsere ???????????????????????????????????????????? für die Partie gegen Paris! ? https://t.co/qgAXoUb1gZ
— FC Bayern Frauen (@FCBfrauen) November 10, 2026
Le scelte di oggi per #InterManchesterCity ???? https://t.co/whSaihGVrC
— Inter Women (@Inter_Women) November 10, 2026