07.02.07 - 15:01
Magnús Már Einarsson
Almir Cosic til HK (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Almir Cosic hefur gert þriggja ára samning við HK en þetta staðfesti Gunnar Guðmundsson þjálfari liðsins í samtali við Fótbolti.net í dag.
Cosic var til reynslu hjá HK í desember og spilaði meðal annars með þeim í æfingaleik gegn Grindavík en hann var einnig til reynslu hjá Breiðablik í haust.
Almir Cosic er þrítugur og hefur hann leikið með Leikni Fáskrúðsfirði í þriðju deildinni undanfarin tvö ár. Það vakti mikla athygli fjölmiðla þegar hann gekk til liðs við Leikni en hann var eftirsóttur leikmaður og meðal annars vildi Newcastle fá hann í sínar raðir á sínum tíma og bauð eina milljón punda í hann.
Á þeim tíma lék Cosic með FC Zeljeznicar í heimalandi sínu, Bosníu-Herzegovínu en hann var metinn á um 300 milljónir íslenskar krónur eftir góða frammistöðu með liðinu í Evrópukeppninni.
Í þriðju deildinni síðastliðið sumar skoraði Cosic átta mörk í tólf leikjum en árið 2005 gerði hann fjögur mörk í sextán leikjum fyrir Leiknismenn.
Sjá einnig:
Leiknir F. með verðmætasta leikmann Íslands