Hinn 18 ára gamli Orri Bjarkason er búinn að framlengja samning sinn við Breiðablik og heldur til ÍR á lánssamningi þar sem hann mun reyna fyrir sér í Lengjudeildinni.
Orri átti frábært tímabil í 3. deildinni í fyrra þar sem hann lék á láni með Augnabliki og reyndist algjör lykilmaður. Hann skoraði 8 mörk og gaf 12 stoðsendingar í 20 deildarleikjum.
Orri hefur æft með meistaraflokki Breiðabliks að undanförnu og er enn gjaldgengur í 2. flokk félagsins, en ákvörðun hefur verið tekin um að hann taki næstu skref ferilsins sem lánsmaður hjá ÍR.
Hann leikur sem framsækinn miðjumaður að upplagi og getur einnig spilað úti á kanti.
Athugasemdir



