Kólumbíski landsliðsmaðurinn James Rodríguez hefur skrifað undir samning við bandaríska MLS-félagið Minnesota United. Um er að ræða stuttan samning sem gildir framyfir HM í sumar.
James kemur á frjálsri sölu en strax eftir að hafa skrifað undir skellti hann sér á leik með Minnesota Timberwolves gegn New Orleans Pelicans (115-119) í NBA-deildinni í körfubolta. Þar fékk hann höfðinglegar móttökur.
Rodriguez er orðinn 34 ára en hann hefur verið án félags síðan um áramótin þegar hann yfirgaf Leon í Mexíkó.
Minnesota hafnaði 4. sæti Vesturdeildar MLS á síðustu leiktíð en tapaði í 2. umferð úrslitakeppninnar.
„HM er ástæðan fyrir því að ég er kominn hingað. Minnesota sýndi mér mestan áhuga og vildi mest fá mig. Ég ætla að sýna mínar bestu hliðar fyrir liðið," segir James sem hefur spilað fyrir Real Madrid, Bayern München, Everton og mörg fleiri lið á ferli sínum.

BTS with No. 10 pic.twitter.com/0xJTQRNj9c
— Minnesota United FC (@MNUFC) February 6, 2026
Athugasemdir