Fotbolti.net
07.03.07 - 06:00
Guðmundur Dagur Ólafsson

Sosa til Bayern Munchen í sumar (Staðfest)

Leikmenn Bayern Munchen fagna marki

Leikmenn Bayern Munchen fagna marki

Canon

Mynd: Getty Images

Þýska félagið Bayern Munchen hefur gengið frá kaupunum á argentínska miðjumanninum Jose Ernesto Sosa og mun félagið þurfa að punga út 6.7m punda fyrir hinn 23 ára gamla Sosa.
Sosa skrifaði undir samninginn á mánudag eftir að hafa staðist læknisskoðun á heimavelli Bayern, Allianz Arena. Sosa, sem í síðustu viku var valinn í argentínska landsliðshópinn, mun ganga til liðs við þýska félagið í sumar frá Estudiantes.

"Þetta er draumur sem er rætast fyrir mig. Öllum leikmönnum í heimi dreymir um að spila fyrir félag eins og Bayern Munchen," sagði Sosa við AZ dagblaðið.

Sosa er þriðji leikmaðurinn sem mun ganga til liðs við Bayern í sumar en hinir eru Jan Schlaudraff frá Alemannia Aachen og Hamit Alintop frá Schalke.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.