Fotbolti.net
07.03.07 - 09:01
Magnús Már Einarsson

Óskar Snær og Ásgeir Örn í Hvöt (Staðfest)

Óskar í leik með Þrótti gegn HK síðastliðið sumar.

Óskar í leik með Þrótti gegn HK síðastliðið sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Jón Steinarr

Þriðjudeildarlið Hvöt frá Blönduósi hefur fengið Óskar Snær Vignisson að láni frá Þrótti og hefur hann þegar fengið leikheimild.
Óskar er uppalinn hjá Hvöt en hann gekk til liðs við Þrótt fyrir síðasta tímabil.

Óskar sem er 23 ára getur leikið í bakverði, kanti og frammi en hann skoraði tvö mörk í ellefu leikjum með Þrótti í fyrstu deildinni á síðustu leiktíð.

Hvöt ætlar sér stóra hluti í þriðju deildinni á komandi sumri en liðið hefur einnig fengið Ásgeir Örn Jóhannsson frá Magna Grenivík.

Ásgeir sem er einnig frá Blönduósi var markahæstur hjá Magna þegar að liðið endaði í öðru sæti í þriðju deildinni á síðustu leiktíð en hann skoraði tíu mörk í 15 leikjum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.