Fotbolti.net
07.04.08 - 09:48
Magnús Már Einarsson

Aleksandar Linta til Þórs (Staðfest)

Aleksandar Linta til Þórs (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Þór hefur fengið Aleksandar Linta til liðs við sig og hefur leikmaðurinn gert eins árs samning við félagið.
Linta kemur frá KA þar sem hann skoraði þrjú mörk í sautján leikjum á síðasta tímabili.

Linta er örfættur og getur leikið bæði í vörninni og á miðjunni. Hann hefur leikið hér á landi í nokkur ár en hann kom fyrst til Íslands árið 1997 þegar hann gekk til liðs við ÍA.

Hann lék með ÍA og Skallagrími og eftir dvöl erlendis kom hann aftur til Skagamanna árið 2003.

Sú dvöl var nokkuð stutt og í kjölfarið gekk þessi 32 ára gamli leikmaður til liðs við Víking Ólafsvík þar sem hann lék 2004 og 2005 áður en hann fór til KA.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.