07.04.08 - 10:07
Magnús Már Einarsson
Fjarðabyggð semur við Aleksandar Konjanovski (Staðfest)

Mynd: Fjarðabyggð

Mynd: Fjarðabyggð
Fjarðabyggð hefur samið við makedónska miðjumanninn Aleksandar Konjanovski.
Aleksandar er 32 ára reynslumikill miðjumaður og spilar í efstu deild í Makedóníu með FK Kumanovo. Þar hefur hann skorað fimm mörk í 31 leik á þessu tímabili.
,,Hann er reynslumikill miðjumaður og er góður sendingar og skotmaður. Hann hefur fallið vel inn í hópinn enda mikill atvinnumaður í öllu sem hann gerir," segir á heimasíðu Fjarðabyggðar.
Aleksandar kom til móts við Fjarðabyggð fyrir helgi þar sem liðið er í æfingaferð í Tyrklandi.
Hann æfði með liðinu og lék æfingaleik gegn rússneska liðinu Tekstilshik á laugadag. Í kjölfarið samdi Fjarðabyggð síðan við hann í gær.

Heimild: Heimasíða Fjarðabyggðar