Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   þri 07. apríl 2020 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Diego Forlan: Valverde getur orðið nýi Ramos
Mynd: Getty Images
Diego Forlan hefur mikla trú á samlanda sínum Federico Valverde sem hefur verið að gera frábæra hluti með Real Madrid.

Forlan og Valverde eru báðir frá Úrúgvæ og telur Forlan samlanda sinn geta orðið að nýjum Sergio Ramos fyrir Real Madrid.

Valverde er 21 árs gamall miðjumaður og er þegar búinn að vinna sér inn fast sæti í byrjunarliði Real og Úrúgvæ.

„Hann hefur allt sem þarf til að halda áfram að bæta sig. Ég er ekki hissa að sjá hann gera vel hjá Real Madrid því þessi gæði hafa alltaf verið til staðar hjá honum. Þetta er leikmaður sem stuðningsmenn Real eiga eftir að fá að njóta í mörg ár," sagði Forlan í útvarpsviðtali við Marca.

„Á miðju Real getur hann orðið það sem Sergio Ramos er í vörninni. Hann er ungur og er enn að öðlast reynslu, sjálfstraust og þroska."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner