Fotbolti.net
07.04.26 - 11:27
Kári Snorrason

„Hann er alveg óþolandi“

Danijel Djuric gekk til liðs við KA frá króatíska félaginu NK Istra í síðasta mánuði.

Danijel Djuric gekk til liðs við KA frá króatíska félaginu NK Istra í síðasta mánuði.

Canon

Mynd: KA

Það er ár mikilla breytinga hjá KA, liðið hefur misst lykilmenn frá sér en sterkir póstar hafa komið inn í staðinn. Norðanmönnum var spáð 7. sætinu hér á Fótbolta.net en stefna eflaust hærra.

Danijel Dejan Djuric eru stóru kaup vetrarins og skoraði hann fyrsta mark sitt fyrir félagið um helgina í Mjólkurbikarnum gegn Hetti.

Rætt var um komandi tímabil hjá KA-mönnum í Besta spjallinu hér á Fótbolta.net.
Besta spjallið - Horfðu á upphitunarþáttinn í mynd
TENGT EFNI

Besta spjallið - Horfðu á upphitunarþáttinn í mynd

„Ég held að það sé bjartsýni hjá KA-mönnum. Þeir fá stóran leikmann í Danijel Djuric. Þeir náðu í leikmenn fyrr í vetur en við höfum séð áður - Montiel og Pedersen frá Vestra. Þeir eru komnir með sænskan bakvörð og Sveinn Margeir er kominn á láni. Það verður áhugavert að sjá hvar Sveinn stendur,“ sagði Gummi Ben og hélt áfram.

„Hins vegar misstu þeir manninn sem breytti öllu á síðasta tímabili í Birni Snæ. Hann gerði aðra leikmenn betri. Þeir missa jafnframt fyrirliðann Ívar Örn og Bjarna Aðalsteins. Þeir eru þó með sinn aðalmann í Hallgrími Mar, maður vonar KA-manna vegna að hann hætti að eldast.“

Alveg óþolandi
Damir Muminovic var gestur í setti og var hann spurður út í það hvernig Danijel væri inni á velli.

„Hann er alveg óþolandi. En hann er frábær leikmaður og ég fagna því að hann sé kominn aftur,“ segir Damir og Gummi tekur við.

„Ég held að allir sem horfi á deildina fagni því að hann sé kominn aftur. Þetta viðtal sem hann fór í á heima á safni. Þetta er leikmaður sem litar deildina. Því fögnum við því innilega að hann sé mættur aftur.“

„Hvort að Danijel muni ná að gera eitthvað af því sem Birnir gerði á síðustu leiktíð er ég ekki alveg sannfærður um. Hann er óútreiknanlegur leikmaður,“
segir Gummi en viðtalið sem um ræðir má sjá hér fyrir neðan.
„Maður vonar KA-manna vegna að hann hætti að eldast.“

„Maður vonar KA-manna vegna að hann hætti að eldast.“

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta spjallið: Damir, Jón Þór og Gummi Ben rýna í liðin

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.