07.05.08 - 09:13
Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik lánar Guðmund Kristjánsson í Hauka (Staðfest)

Guðmundur í baráttu við Ásgeir Ásgeirsson í leik gegn FH síðastliðið sumar.

Mynd: FH.is

Guðmundur í baráttu við Ásgeir Ásgeirsson í leik gegn FH síðastliðið sumar.

Mynd: FH.is
Breiðablik hefur lánað miðjumanninn Guðmund Kristjánsson til 1. deildarliðs Hauka en þetta var staðfest á vefsíðu meistaraflokks Breiðabliks, Blikar.is.
Guðmundur er 19 ára gamall miðavallarleikmaður sem hefur leikið með U17, U18 og U19 ára landsliðum Íslands, nú síðast með U19 ára liðinu gegn Búlgörum í byrjun þessa mánaðar.
Hann lék tvo leiki með Breiðablik í Landsbankadeildinni á síðustu leiktíð en mun nú fá reynslu með Haukum sem eru nýliðar í 1. deildinni þetta árið.
Hann hafði ekki átt fast sæti í liði Breiðabliks á undirbúningstímabilinu.

Heimild: Blikar.is