Fotbolti.net
07.05.08 - 13:36
Magnús Már Einarsson

Grindavík fær sóknarmenn frá Gabon og Póllandi (Staðfest)

Grindavík fær sóknarmenn frá Gabon og Póllandi (Staðfest)
Canon

Mynd: Þorsteinn G Kristjánsson

Grindavík hefur fengið tvo framherja til liðs við sig og koma þeir hingað til lands í dag. þetta kemur fram á fréttavef Morgunblaðsins, mbl.is.
Um er að ræða Gilles Mbang Ondo sem er frá Gabon og Tomaz Stolpa frá Póllandi.

GIles Mbang Ondo hefur leikið í Frakklandi með B-liði Auxerre en síðast var hann á mála hjá SC Eisenstadt í Austurríki.

Stolpa er 25 ára og var síðast á mála hjá Gefle í Svíþjóð. Áður hefur Stolpa meðal annars einnig leikið með Tromsø í Noregi, Enköping í Svíþjóð og Eendracht Aalst í Belgíu.

Grindvíkingar hafa styrkt lið sitt að undanförnu en í síðustu viku kom miðjumaðurinn Fredrik Famiyhe til liðsins sem og varnarmaðurinn Zoran Stanenic frá Serbíu.

Þá er króatíski varnarmaðurinn Marinko Skaricic einnig kominn til Grindvíkinga en hann lék með liðinu í fyrstu deildinni í fyrra.

Heimild: mbl.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.