Fotbolti.net
07.06.07 - 15:29
Hafliði Breiðfjörð

Franck Ribery til Bayern Munchen (Staðfest)

Franck Ribery í leik  með franska landsliðinu.

Franck Ribery í leik með franska landsliðinu.

Canon

Mynd: Getty Images

Franski miðvallarleikmaðurinn Franck Ribery er genginn í raðir þýska stórliðsins Bayern Munchen og gerði í dag fjögurra ára samning við félagið. Pape Diouf formaður Marseille staðfesti þetta í dag.
,,Við höfum hjálpað Franck að komast þangað sem hann er kominn í dag og við erum ekkert sérstaklega ánægðir með að sleppa honum," sagði Diouf á vefsíðu franska félagsins, OM.net.

Bayern greiða 26 milljónir evra fyrir Ribery og svo 4 milljónir til viðbótar ef þýska liðið kemst í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð.

,,Þetta er gott fyrir félagið fjárhagslega sem sannar að Marseille geta vanist markaði sem er ekki auðveldur," sagði Diouf.

Ribery sem er 24 ára gamall kom til Marseille árið 2005. Hann vakti athygli fyrir frammistöðu sína með franska landsliðinu á Heimsmeistaramótinu í Þýskalandi síðasta sumar en með franska landsliðinu á hann að baki 18 leiki og hefur skorað í þeim tvö mörk.

Arsenal og Real Madrid höfðu einnig sýnt því áhuga að fá Ribery í sínar raðir en Bayern Munchen höfðu betur. Fréttamannafundur verður í Munchen síðar í dag þar sem hann verður kynntur sem leikmaður félagsins.

Ribery er nýjasti leikmaðurinn sem Munchen tryggja sér eftir vonbrigða tímabil í þýsku deildinni en þeim tókst ekki að næla sér í sæti í Meistaradeild Evrópu á komandi leiktíð eftir að hafa endað í fjórða sæti þýsku deildarinnar.

Þeir hafa til þessa fengið ítalska markaskorarann Luca Toni, tyrkneska landsliðsmanninn Hamit Altintop, Þjóðverjana Marcell Jansen og Jan Schlaudraff og argentíska miðjumanninn Jose Ernesto Sosa.

Þeir hafa einnig lýst yfir áhuga á að fá Miroslav Klose til sín áður en tímabilið hefst en gætu þurft að bíða til ársins 2008 er samningur hans við Werder Bremen rennur út.

Fjármögnun á kaupum Ribery kom í gegnum sölu á Owen Hargreaves til Manchester United en kaupverð á honum var talið 25 milljónir evra. Auk hans hafa Claudio Pizzaro farið til Chelsea án greiðslu, Hasan Salihamidzic til Juventus og Ali Karimi hefur verið tjáð að hann megi fara.

Heimild: Reuters

Franck Ribery til Bayern Munchen (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.