Danski landsliðsmaðurinn Christian Eriksen fór í hjartastopp í landsleik Danmerkur og Úkraínu í kvöld.
Christian Eriksen fór í hjartastopp í leik Danmerkur og Finnlands á Evrópumótinu árið 2021 og var hlúð að honum á Parken í Kaupmannahöfn áður en hann var fluttur á sjúkrahús.
Atvikið er eitt það óhugnanlegasta sem sést hefur á Evrópumóti, en liðsfélagar hans og fjölskylda stóðu á vellinum í öngum sínum og biðu frekari upplýsinga.
Sem betur fer tókst að bjarga Eriksen og í kjölfarið var honum komið fyrir ígræddu hjartastuðtæki. Eftir það var honum meinað að spila á Ítalíu, þar sem leikmönnum er ekki heimilt að spila með slíkt tæki.
Hann náði bata og sneri aftur á völlinn með Brentford áður en hann gekk til liðs við Manchester United. Þaðan fór hann til Wolfsburg á síðasta ári.
Þegar um hálftími var eftir af leik Danmerkur og Úkraínu í kvöld hneig Eriksen niður. Hann komst aftur til meðvitundar og gat gengið sjálfur inn í sjúkrabílinn. Samkvæmt upplýsingum frá danska sambandinu er líðan hans góð miðað við aðstæður.
Leikurinn var í kjölfarið flautaður af í stöðunni 2-1 fyrir Dönum. Patrick Dorgu og Joakim Mæhle komu Dönum í 2-0 en Viktor Tsygankov minnkaði muninn undir lok fyrri hálfleiks.
???? Christian Eriksen collapsed again during the friendly between Denmark and Ukraine
— Vfynn_???????? ???? (@Vfynn_) June 7, 2026
Thoughts with Eriksen and his family ?????? pic.twitter.com/W6EP7ZCxjX



