Hinn fertugi Luka Modric skoraði í 2-1 sigri Króatíu á Slóveníu í síðasta æfingaleiknum fyrir heimsmeistaramótið í kvöld.
Modric, sem er á leið á sitt síðasta stórmót, kom Króötum yfir á 51. mínútu með snyrtilegri afgreiðslu við vítateigslínuna.
Andraz Sporar jafnaði fyrir Slóvena á 83. mínútu áður en Mario Pasalic tryggði Króötum sigurinn.
Króatía mætir Englandi í fyrsta leik sínum á HM, en sá leikur fer fram 17. júní, á þjóðhátíðardegi Íslendinga.
Marokkó og Noregur skildu jöfn, 1-1. Brahim Díaz kom Marokkó yfir á 8. mínútu áður en Martin Ödegaard jafnaði þegar stundarfjórðungur var eftir með laglegu skoti úr miðjum teignum.
Báðar þjóðir eru klárar fyrir HM. Noregur mætir Írak 17. júní á meðan Marokkó mætir Brasilíu 14. júní.
Ungt lið Ítalíu marði þá 1-0 sigur á Grikklandi á Krít. Pio Esposito skoraði eina mark leiksins á 18. mínútu. Ítalir léku manni færri frá 68. mínútu þegar Luca Reggiani fékk að líta rauða spjaldið.
Hvorug þjóðin fer á HM, en hvorki Ítalía né Grikkland hefur spilað þar síðan 2014.
Króatía 2 - 1 Slóvenía
1-0 Luka Modric ('51 )
1-1 Andraz Sporar ('83 )
2-1 Mario Pasalic ('90 )
Grikkland 0 - 1 Ítalía
0-1 Pio Esposito ('18 )
Rautt spjald: Luca Reggiani, Ítalía ('68)
Marokkó 1 - 1 Noregur
1-0 Brahim Diaz ('8 )
1-1 Martin Odegaard ('75 )
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!




