Gunnar Olsen lagði upp í sigri FCK - Rúnar í markinu

Gunnar Orri Olsen lagði upp fimmta mark FCK

Mynd: FCK

Fjölmargir Íslendingar spiluðu æfingaleiki á Norðurlöndunum í dag.
Rúnar Alex Rúnarsson stóð á milli stanganna hjá FCK í fyrri hálfleik í 5-3 sigri á sænsku meisturunum í Mjällby.
Unglingalandsliðsmaðurinn Gunnar Orri Olsen kom inn af bekknum hjá FCK í hálfleik og lagði upp fimmta mark liðsins fyrir Andreas Cornelius. Gunnar fór fram hjá nokkrum leikmönnum áður en hann fann Cornelius, sem skoraði af öryggi.
Flottur sigur hjá FCK en Viktor Bjarki Daðason var ekki með.
Tómas Óli Kristjánsson spilaði með AGF sem gerði 1-1 jafntefli við Viborg. Ísak Andri Sigurgeirsson var fjarri góðu gamni hjá Viborg.
Hlynur Freyr Karlsson byrjaði á bekknum hjá Brommapojkarna sem tapaði 2-0 fyrir Kalmar.
Daníel Ingi Jóhannesson lék síðari hálfleikinn með Nordsjælland sem gerði 1-1 jafntefli við Horsens. Guðlaugur Victor Pálsson var ekki með Horsens.
Kolbeinn Birgir Finnsson lék fyrri hálfleikinn með Vålerenga sem tapaði 2-1 fyrir GAIS. Róbert Frosti Þorkelsson var í byrjunarliði GAIS.
Kjartan Már Kjartansson lék síðari hálfleikinn með Aberdeen sem marði 1-0 sigur á Cove Rangers. Þá komu Júlíus Mar Júlíusson og Hrannar Snær Magnússon báðir við sögu hjá Kristiansund í 3-0 tapi gegn Álasund.
Kolbeinn Þórðarson byrjaði hjá Gautaborg í 2-1 tapi gegn Viðari Ara Jónssyni og félögum í Ham/Kam. Viðar byrjaði hjá Ham/Kam.