Fotbolti.net
27.06.26 - 16:06
Brynjar Ingi Erluson

Lengjudeildin: Bjargaði stigi með marki undir lokin

Örn Bragi skoraði jöfnunarmark Þróttar undir lokin

Örn Bragi skoraði jöfnunarmark Þróttar undir lokin

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þróttur R. 1 - 1 Vestri
0-1 Breki Þór Hermannsson ('41 )
1-1 Örn Bragi Hinriksson ('91 )
Lestu um leikinn
Topplið Þróttar bjargaði stigi gegn bikarmeisturum Vestra í 1-1 jafntefli í Lengjudeild karla á AVIS-vellinum í Laugardal í dag.

Vestri gat jafnað Þrótt að stigum á toppnum með sigri og var lengi vel á góðri leið með það eftir mark undir lok fyrri hálfleiks.

Þróttarar urðu fyrir mikilli blóðtöku strax í upphafi leiks þegar Sigurður Egill Lárusson lenti í samstuði við Sergine Fall með þeim afleiðingum að hann meiddist illa. Sigurður lá sárþjáður eftir og hélt um hnéð áður en honum var skipt af velli.

Þrátt fyrir að missa eitt sterkasta vopn sitt voru Þróttarar líklegri framan af. Kári Kristjánsson og Adam Árni Róbertsson áttu skot með stuttu millibili en þegar lítið var eftir af fyrri hálfleik skoraði Breki Þór Hermannsson mark Vestra upp úr gjörsamlega engu.

Langur bolti kom fram völlinn og Baldur Hannes Stefánsson, fyrirliði Þróttar, reyndi að halda Breka frá boltanum en tókst það ekki. Breki slapp einn í gegn, komst einn á móti Þórhalli Ísaki Guðmundssyni og setti boltann framhjá honum og í netið.

Þróttarar héldu áfram að pressa í síðari hálfleik og fengu nokkrar tilraunir til að jafna metin. Vestri lá aftarlega og ætlaði sér greinilega að verja forystuna með kjafti og klóm, en á endanum lét undan.

Heimamenn þjörmuðu að gestunum og Marvin Darri Steinarsson hafði verið frábær í marki Vestra með margar mikilvægar vörslur. Hann sá við tilraun Kára í uppbótartíma en boltinn barst til Arnar Braga Hinrikssonar, sem skaut í varnarmann og þaðan skoppaði boltinn í netið.

Stuttu síðar var Magnús Þórðarson hársbreidd frá því að tryggja Þrótturum öll þrjú stigin þegar boltinn kom á fjærstöngina. Hann rétt missti af honum og reyndist það síðasta færi leiksins.

Lokatölur í Laugardal, 1-1. Þróttur er áfram á toppnum með 23 stig en Vestri er í þriðja sæti með 20 stig.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Afturelding14+2231
2Fylkir14+1230
3HK14+625
4Þróttur R.13+1224
5Vestri14-121
6Njarðvík14+120
7Leiknir R.14019
8Grótta13-419
9Grindavík13-313
10ÍR14-1112
11Völsungur13-168
12Ægir14-188
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.