Sara Björk Gunnarsdóttir mun að öllum líkindum snúa aftur á völlinn með Haukum þegar liðið mætir Keflavík þann 16. júlí næstkomandi, en þetta kom fram í tilkynningu Hauka fyrir helgi.
Sara Björk Gunnarsdóttir, ein allra besta knattspyrnukona í sögu Íslands, snýr aftur í íslenska boltann í sumar.
Hún er uppalin hjá Haukum og ákvað að snúa aftur heim eftir farsælan feril erlendis.
Samningur Söru við Al Qadsiah rennur út í lok júní og má hún því hvorki æfa né spila með Haukum fyrr en 1. júlí.
Áætlað er að hún spili sinn fyrsta leik gegn Keflavík 16. júlí.
„Nei, ég er á samningi til 30. júní þannig að ég má hvorki spila né æfa með liðinu fyrr en 1. júlí,“ sagði Sara Björk í viðtali við Fótbolta.net.
Haukar greindu einnig frá því að Sara muni koma að afreksþjálfun hjá félaginu, en það á eftir að fara betur yfir þau mál. Hún getur ekki beðið eftir því að ráðast í það verkefni.
„Ég er að koma inn sem leikmaður og það er afreksstefna hjá Haukum. Ég vil koma mér betur inn í hana, en við erum ekki búin að móta hana alveg. Það er bara spennandi að koma mér inn í það,“ sagði hún enn fremur.
Haukar eru á toppi Lengjudeildarinnar með fullt hús stiga eftir fimm umferðir og stefna á að komast upp í Bestu deildina fyrir næstu leiktíð.




