Að minnsta kosti níu manns særðust í skotárás sem átti sér stað nálægt HM-bækistöðvum enska landsliðsins í Kansas City í Missouri í gærmorgun. Lögreglan í Kansas City staðfesti þessar fregnir í dag.
Lögreglu barst tilkynning um skotárásina klukkan fjögur að staðartíma og voru fórnarlömbin flutt á sjúkrahús í grenndinni.
Skotárásin átti sér stað aðeins nokkrum kílómetrum frá bækistöðvum Englendinga fyrir heimsmeistaramótið.
Allir hinir særðu voru með áverka sem ekki eru taldir lífshættulegir og er búist við að þeir nái sér.
Leikmenn og þjálfarar enska landsliðsins voru ekki á staðnum þegar atvikið átti sér stað, en liðið undirbjó sig þá fyrir landsleikinn gegn Nýja-Sjálandi, sem vannst 1-0. Enska landsliðið verður áfram í Flórída, þar sem það mætir Kosta Ríka á miðvikudag áður en það heldur til Kansas.
Alsír, Argentína og Holland verða einnig með bækistöðvar sínar í Kansas City á heimsmeistaramótinu, en staðsetningin þykir henta vel þar sem hún er miðsvæðis og æfingaaðstaðan er góð.
Yfirvöld í Missouri hafa hafið rannsókn á skotárásinni og segja að öryggisgæsla verði efld í kringum öll landslið sem dvelja á svæðinu á meðan heimsmeistaramótið stendur yfir.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!



