Coventry stóð uppi sem sigurvegari í Championship deildinni á síðustu leiktíð og mætir því í úrvalsdeildina á næsta tímabili undir stjórn Frank Lampard.
Markvörðurinn Carl Rushword hjálpaði Coventry að vinna sér sæti í úrvalsdeildinni en hann var á láni frá Brighton. Hann byrjaði alla 46 leiki liðsins í Championship deildinni.
Sky Sports greinir frá því að Coventry hafi lagt fram 20 milljón punda tilboð í hann.
Hann á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við Brighton en það er ákvæði í samningi hans sem gerir félagin kleift að framlengja hann um ár til viðbótar.


